16. úthlutun úr Styrktarsjóði samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns fór fram 2. desember 2025 í Háuloftum.
Alls bárust 35 umsóknir um styrki til tónleikahalds í sölum Hörpu árið 2026.
Sjóðurinn styrkti 20 verkefni og heildarupphæð styrkja var kr. 7.000.000.-
Styrkþegar fyrir árið 2026
Jazzklúbburinn Múlinn
Fjölbreytt tónleikadagskrá ársins 2026 sem fram fer í Björtuloftum og í Kaldalóni. Haldnir eru um 40 tónleikar á ári með helsta jazztónlistarfólki landsins og erlendum gestum. Ólafur Jónsson og Haukur Gröndal skipuleggja tónleikaröðina.
Ólafur Jónsson tók á móti styrknum.
Reykjavík Early Music Festival
Alþjóðleg barokkhátíð sem haldin er nú í þriðja sinn, í Dymbilviku. Metnaðarfull og fjölbreytt dagskrá sem skapar m.a.samstarf íslenskra og erlendra tónlistarhópa. Meðal flytjenda í ár verður Christina Pluhar og hljómsveit hennar L’Arpeggiata frá Frakklandi. Listrænn stjórnandi er Elfa Rún Kristinsdóttir, fiðluleikari.
Gunnhildur Daðadóttir tók á móti styrknum.
Kammersveit Reykjavíkur
Allt frá stofnun Kammersveitarinnar árið 1974 hefur hún leitast við að færa hlustendum áhugaverða tónlist og gefa hljóðfæraleikurum tækifæri til að takast á við kröfuhörð verkefni. Sérstök áhersla er lögð á frumflutning íslenskra tónverka og að flytja erlend verk sem ekki hafa heyrst hér á landi. Árlega heldur sveitin ferna tónleika í Hörpu.
Áshildur Haraldsdóttir tók á móti styrknum.
Tónlistarhátíðin Seigla
Seigla hefur verið haldin árlega, aðra helgina í ágúst síðan árið 2021. Markmið hátíðarinnar er að skapa náið samfélag milli flytjenda og áheyrenda og að endurhugsa hefðbundin mörk milli þeirra sem flytja tónlistina og þeirra sem njóta.
Listrænn stjórnandi Seiglu er Erna Vala Árnadóttir, píanóleikari.
Þórunn Þórólfsdóttir tók á móti styrknum.
Stórsveit Reykjavíkur
Dagskrá starfsársins 2026 mun bjóða upp á formlega og óformlega tónleika, nýja tónlist, íslenska, erlenda, sögulega, framsækna og metnaðarfulla tónlist og sérstaka efnisskrá fyrir börn.
Sigurður Flosason tók á móti styrknum.
Myrkir Músíkdagar
Tónlistarhátíðin er ein af þeim elstu á landinu, stofnuð árið 1980 af Tónskáldafélagi Íslands. Markmið hátíðarinnar er að kynna og flytja íslenska samtímatónlist og kynna erlend verk og flytjendur. Hátíðin fer fram árlega í lok janúar.
Óperudagar
Hátíðin er árlegur vettvangur klassískra söngvara og samstarfsfólks þeirra sem vilja í sameiningu og í samstarfi efla og styrkja óperu- söng- og tónlistarleikhússenuna á Íslandi. Óperudagar eru haldnir í lok október.
Listrænn stjórnandi er Guja Sandholt og tók hún á móti styrknum.
Kammermúsíkklúbburinn
Í hartnær sjö áratugi hefur Kammermúsíkklúbburinn staðið vaktina í flutningi kammertónlistar með íslenskum og erlendum flytjendum sem annars hefur tæpast heyrst hér á landi. Haldnir verða 6 tónleikar á starfsárinu.
Listrænn stjórnandi er Ari Vilhjálmsson.
Nína Lea Jónsdóttir og Marín McGinley veittu styrknum viðtöku.
Jóhannesarpassían eftir J. S. Bach
Í tilefni af 50 ára afmæli Sumartónleika í Skálholti sumarið 2025 standa þeir fyrir flutningi Jóhannesarpassíunnar í Eldborg 1. mars 2026. Flytjendur eru kammerkórinn Schola Cantorum, Barokkbandið Brák, Finnish Baroque Orchestra ásamt íslenskum og erlendum einsöngvurum. Benedikt Kristjánsson sem er listrænn stjórnandi Sumartónleikanna, syngur hlutverk guðspjallamannsins og stjórnar tónleikunum.
Benedikt Kristjánsson tók á móti styrknum.
Ljóðatónleikar með tónlist eftir Mahler og Strauss.
Bryndís Guðjónsdóttir, sópran og Eva Þyri Hilmarsdóttir, píanó flytja tvo ljóðaflokka eftir þessa höfunda í Norðurljósum.
Eva Þyri Hilmarsdóttir tók á móti styrknum.
Yerma og önnur leikhústónlist Hjálmars H. Ragnarssonar
Flutt verður leikhústónlist sem spannar allan feril Hjálmars með höfuðáherslu á tónlist úr sýningunni Yermu árið 1987. Meðal flytjenda er Cantoque Ensemble, einsöngvarar, píanó og slagverk.
Stjórnandi verkefnisins, Hallveig Rúnarsdóttir, tók á móti styrknum.
Kveðja – tríótónleikar
Kristín Ýr Jónsdóttir, flauta, Þórhildur Magnúsdóttir, víóla og Gunnhildur Einarsdóttir, Harpa flytja efnisskrá sem sækir innblástur í áhrif flautuleikarans Manuelu Wiesler á íslenskt tónlistarlíf. Flutt verða glæsileg verk, ma. samin fyrir eða til minningar um Manuelu.
Emma Garðarsdóttir tók á móti styrknum.
Píanókvartettinn Negla
Kvartettinn skipa Sólveig Steinþórsdóttir, fiðla, Anna Elísabet Sigurðardóttir, víóla, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, selló og Þóra Kristín Gunnarsdóttir, píanó. Þær flytja metnaðarfulla dagskrá með verkum Gabriel Fauré og Amanda Röntgen-Maier.
Sólveig Steinþórsdóttir tók á móti styrknum.
Frá Berlín til Reykjavíkur
Pétur Björnsson, fiðla, Ingólfur Vilhjálmsson, klarinett og Elena Postumi, píanó flytja framúrstefnulega og metnaðarfulla kammertónlist eftir Saunders, Berg og Bartok ásamt frumflutningi verks eftir Elenu.
Anna Guðrún Þórhallsdóttir tók á móti styrknum.
Frá fiðlu til fiðlu
Sif Margrét Tulinius flytur krefjandi einleiksverk eftir J. S. Bach, Béla Bartok og örverk ungverska tónskáldsins György Kurtág sem fagnar 100 ára afmæli á árinu.
Sif M. Tulinius tók ´móti styrknum.
Þór Breiðfjörð – “ Með hjartað opið”
Þór flytur ásamt hljóðfæraleikurum frumsamið efni af samnefndri plötu sem mun koma út á árinu. Viðfangsefni Þórs eru ástin, óttinn og mennskan. Tónleikarnir fara fram í Kaldalóni.
Þór Breiðfjörð tók á móti styrknum.
Ástin, ástin – Tríó Sól & vinir.
Í febrúar verður rómantíkin í forgrunni á tónleikum strengjatríósins Sólar, en það skipa fiðluleikararnir Emma Garðarsdóttir og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir ásamt víóluleikaranum Þórhildi Magnúsdóttur. Með þeim verða Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, sópran og Þórdís Gerður Jónsdóttir, selló. Á efnisskrá eru m.a. verk eftir Barber, Holst og Caroline Shaw.
Emma Garðarsdóttir tók á móti styrknum.
Ea Fantasia
Una Sveinbjarnardóttir, fiðluleikari fagnar útgáfu samnefndar plötu með einleiksverkum, m.a. eftir Karólínu Eiríksdóttur, Maríu Huld Markan, Lilju Maríu Ásmundsdóttur, John Speight, Svein Lúðvík Björnsson, Jón Nordal, Nicola Matteis, auk eigin verka.
Una Sveinbjarnardóttir tók á móti styrknum.
Ýr og óvæntar áttir
Tríó Sírajón skipa þau Einar Jóhannesson, klarinett, Laufey Sigurðardóttir, fiðla og Anna Áslaug Ragnarsdóttir, píanó. Þau frumflytja verk eftir Ingibjörgu Ýri Skarphéðinsdóttur og flytja í fyrsta sinn á Íslandi tríó eftir Hans Gál og Paul Schopenfield.
Einar Jóhannesson og Laufey Sigurðardóttir tóku á móti styrknum.
Navaranaaq
Navaranaaq er samstarfsverkefni Mótettukórsins og stjórnanda hans Stefan Sand, grænlenska skáldsins Kimmernaq Støvlbæk og tónskáldsins Nuka Alice, sem semur með Stefáni nýtt verk byggt á Ólafsrímum, fyrir strengjasveit, blandaðan kór, barnakór og trommudansara. Verkið verður flutt ásamt fleiri verkum í Norðurljósum og síðar bæði í Nuuk og í Oslo.
Stefan Sand tók á móti styrknum.
