Sjöunda úthlutun styrktarsjóðs Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns, fór fram 11. janúar í Hörpu.
Úthlutað var styrkjum til tónleikahalds í Hörpu fyrir árið 2018, alls að upphæð kr. 4.100.000.-
Umsóknir voru alls 47, og úthlutað var til 10 verkefna.
Styrkþegar ársins eru
- Barokkbandið Brák – tvennir tónleikar í Norðurljósum
- Einar Scheving – tónleikar í Eldborg
- Elecktra Ensemble – 10 ára afmæli, tvennir tónleikar
- Hallveig Rúnarsdóttir og kammersveit – tónleikar í Norðurljósum
- Lúðrasveitin Svanur – kvikmyndatónleikar í Eldborg
- Stirni Ensemble – tvennir tónleikar í Norðurljósum
- Strokkvartettinn Siggi – tvennir tónleikar í Norðurljósum
- Jazzklúbburinn Múlinn – tónleikadagskrá ársins 2018
- Kammersveit Reykjavíkur – tónleikadagskrá ársins 2018
- Stórsveit Reykjavíkur – tónleikardagskrá ársins 2018
Meðfylgjandi myndir tók Bóas Kristjánsson við afhendinguna.