Áttunda úthlutun styrktarsjóðs Samtaka um tónlistarhús og Ruthar

Áttunda úthlutun styrktarsjóðs Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns, fór fram 18. janúar  2019 í Björtuloftum Hörpu.

Úthlutað var styrkjum til tónleikahalds í Hörpu fyrir árið 2019, alls að upphæð kr. 6.000.000.-

Umsóknir voru alls 28, og úthlutað var til 15 verkefna.

Styrkþegar ársins eru:

  • Arngunnur Árnadóttir, klarinettuleikari – einleikstónleikar í Norðurljósum
  • Barokkbandið Brák – barokktónleikar í Norðurljósum
  • Benedikt Kristjánsson, tenór – einsöngstónleikar í Norðurljósum
  • Kammerhópurinn Camerartica – kammertónleikar í Norðurljósum
  • Cauda Collective kammerhópur – tónleikar í Kaldalóni
  • Helen V. C. Whitaker  flautuleikari – verk eftir 20. og 21. aldar kventónskáld í Kaldalóni
  • Lúðrasveitin Svanur – kvikmyndatónleikar í Kaldalóni
  • New Music for Strings, tónlistarhátíð – tónleikar í Norðurljósum
  • Tríó Nordica – tónleikar í Norðurljósum
  • Tríó Sírajón – tónleikar í Norðurljósum
  • Stirni Ensemble – tvennir tónleikar í Norðurljósum
  • Reykjavík Midsummer Music Festival – tónlistarhátíð í Hörpu
  • Jazzklúbburinn Múlinn -otónleikadagskrá ársins 2019
  • Kammersveit Reykjavíkur – tónleikadagskrá ársins 2019
  • Stórsveit Reykjavíkur – tónleikardagskrá ársins 2019