Áttunda úthlutun styrktarsjóðs Samtaka um tónlistarhús og Ruthar Hermanns, fór fram 18. janúar 2019 í Björtuloftum Hörpu.
Úthlutað var styrkjum til tónleikahalds í Hörpu fyrir árið 2019, alls að upphæð kr. 6.000.000.-
Umsóknir voru alls 28, og úthlutað var til 15 verkefna.
Styrkþegar ársins eru:
- Arngunnur Árnadóttir, klarinettuleikari – einleikstónleikar í Norðurljósum
 - Barokkbandið Brák – barokktónleikar í Norðurljósum
 - Benedikt Kristjánsson, tenór – einsöngstónleikar í Norðurljósum
 - Kammerhópurinn Camerartica – kammertónleikar í Norðurljósum
 - Cauda Collective kammerhópur – tónleikar í Kaldalóni
 - Helen V. C. Whitaker flautuleikari – verk eftir 20. og 21. aldar kventónskáld í Kaldalóni
 - Lúðrasveitin Svanur – kvikmyndatónleikar í Kaldalóni
 - New Music for Strings, tónlistarhátíð – tónleikar í Norðurljósum
 - Tríó Nordica – tónleikar í Norðurljósum
 - Tríó Sírajón – tónleikar í Norðurljósum
 - Stirni Ensemble – tvennir tónleikar í Norðurljósum
 - Reykjavík Midsummer Music Festival – tónlistarhátíð í Hörpu
 - Jazzklúbburinn Múlinn -otónleikadagskrá ársins 2019
 - Kammersveit Reykjavíkur – tónleikadagskrá ársins 2019
 - Stórsveit Reykjavíkur – tónleikardagskrá ársins 2019